þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Aðeins nokkrar stundir í að febrúar klárist,
það er orðið næstum bjart þegar ég á að mæta í annan tíma á morgnanna
og ég er ekki með kvef.
Mér líður eins vel og Heine í París.
Aðeins nokkrar stundir í að febrúar klárist,
það er orðið næstum bjart þegar ég á að mæta í annan tíma á morgnanna
og ég er ekki með kvef.
Mér líður eins vel og Heine í París.

laugardagur, febrúar 18, 2006

Hvernig skrifa má þegar maður er í fríi.

Þessi árshátíð var sko mögnuð og fyrirpartýið og maturinn. Þetta vorfrí sko mar bar' æði.
Oso pottapartý á eftir. Djísús.

föstudagur, febrúar 10, 2006

Ég skil ennþá ekki hvernig prinsessan komst inn í hörpuna og ég veit heldur ekki hvað mól eru. Öllu öðru náði ég. Held ég.

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

fiddleedee

Í morgunsárið dreymdi mig að ég væri í mjög svo einkennilegri messu. Rétt áður en mamma vakti mig byrjaði presturinn, sem var fallegur, góður og blíður ungur maður, að spila á fiðlu. Ég man ekki hvað hann spilaði en ég þekkti það samt sem áður. Þegar ég svo vaknaði var ég með óþrjótandi löngun til að hlusta á fiðlu. Þessi löngun hefur heldur ekkert dvínað þó ég hafi hlustað á öll fiðluverk sem eru inni á poddanum mínum. Mig kitlar í eyrun af fiðlulöngun. Kannski sef ég þetta af mér. Kannski dreymir mig þríhorn í nótt. Það gæti samt verið svolítið óþægilegra.