miðvikudagur, maí 31, 2006

Mig langar að sjá þessa mynd aftur.

mánudagur, maí 22, 2006

Ég er búin að sofa mikið. Kötturinn sem hefur hrætt úr mér líftóruna á nánast hverju kvöldi í vor er líka hættur að birtast. Hann er hættur að stara inn um gluggann minn og framkalla hljóð sem líkjast frekar andarsliturshljóðum en mjálmi. Ég sé hann samt ennþá á rölti með fram sjónum. Mér líkar ekki vel við þennan kött.

fimmtudagur, maí 11, 2006

Mahler dagurinn


Margt hefur gerst síðan ég kláraði grískuprófið.
Til dæmis fór ég í líffræðipróf. Það var hræðilega leiðinlegt. Það var samt leiðinlegra að lesa fyrir það. Djísús. Það var svo leiðinlegt að ég þurfti bara að fara í 12 tóna og kaupa allar sínfóníur Mahlers fyrir matarpeninginn minn. Það var nú gaman. Ég vingaðist líka við klassíska 12 tóna gaurinn sem prangaði inn á mig þessum sínfóníum. Honum veittist það frekar auðvelt, enda greinilega mikill Mahler aðdáandi sjálfur.
Í dag tók mér pásu frá frönskulærdómnum á Bókhlöðunni (og 6. sinfóníu Mahlers því ég var búin að hlusta á hana allan daginn) og rölti niður í Háskólabíó. Þegar ég kom þangað vildi það bara svo til að ég var með miða í veskinu og að þeir voru að fara að spila 6. sinfóníu Mahlers. Magnaðar þessar tilviljanir.Og Mahler líka.

föstudagur, maí 05, 2006

Lýsingarháttur er kúl og nytsamlegur

Ég er ótrúlega ánægð að grískuprófið er búið. Og söngmatið mitt. Og grískuprófið.
Og ég ætla ekki að læra í kvöld, cause I live on the edge.
Þið megið kalla mig The Edge. Ekki Edge. The Edge.