fimmtudagur, júní 08, 2006

Ekki er öll vitleysan eins.

Í dag þreif ég mikið af pípum í vinnunni. En það var ekki fyrr en eftir að ég hafði borðað, sofið, borðað aftur, farið út á bensínstöð og fengið mér nammi og farið í Kringluna...á launum.

Mamma stóð úti á svölum áðan og æpti á mig eins og klikkuð kona að koma undir eins. Ég var auðvitað allsnakin inni á baðherbergi og rétt náði að grípa um mig handklæði og fór á því einu saman út á svalir. Þá benti mamma mér á selshöfuð sem rétt glitti í áður en það hvarf alveg ofan í sjóinn. Eftir að selurinn var farinn tók ég eftir nokkrum strákagemlingum sem hlógu að mér. Mér finnst ekki fallegt að hlæja hálfnöktu fólki.


8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hahaha, æ æ!

8:54 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

he, það er nú ekki neitt, það hefur verið hlegið að mér naktri, frekar absúrd, ekki beint egóbúst það

6:13 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

he, það er nú ekki neitt, það hefur verið hlegið að mér naktri, frekar absúrd, ekki beint egóbúst það

6:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

he, það er nú ekki neitt, það hefur verið hlegið að mér naktri, frekar absúrd, ekki beint egóbúst það

6:15 e.h.  
Blogger Arngunnur Árnadóttir said...

Þú ert æði.

6:22 e.h.  
Blogger Arngunnur Árnadóttir said...

Og myndirnar eruy flottar!

6:30 e.h.  
Blogger Ragnhildur Hólmgeirsdóttir said...

starfarðu við pípur?

10:48 e.h.  
Blogger sighvatsson said...

er pípan tín bilud?

3:41 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home